2. maí 2021

Framboðskynning á Íslendingi 3. - 11. maí

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verða kynntir á vefritinu og á facebook-síðu flokksins í kjördæminu dagana 3. - 11. maí, einn á dag, í þeirri röð sem þeir munu verða á kjörseðlinum í prófkjörinu.

Dregið var um röðina á fundi með frambjóðendum og kom þar upp nafn Ragnars Sigurðssonar - önnur nöfn koma svo í kjölfarið í stafrófsröð.

Röðin verður því með þessum hætti:


Ragnar Sigurðsson , 40 ára, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Reyðarfirði
Berglind Ósk Guðmundsdóttir , 27 ára, lögfræðingur og varabæjarfulltrúi, Akureyri
Berglind Harpa Svavarsdóttir , 45 ára, bæjarfulltrúi og formaður byggðaráðs, Egilsstöðum
Einar Freyr Guðmundsson , 18 ára, menntaskólanemi, Egilsstöðum
Gauti Jóhannesson , 57 ára, forseti sveitarstjórnar, Djúpavogi
Gunnar Hnefill Örlygsson , 31 árs, framkvæmdamaður og fjármálaverkfræðinemi, Húsavík
Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir , 25 ára, háskólanemi, Ólafsfirði
Ketill Sigurður Jóelsson , 34 ára, verkefnastjóri, Akureyri 
Njáll Trausti Friðbertsson , 51 árs, alþingismaður, Akureyri