Vörn, félag sjálfstæðiskvenna á Akureyri


Vörn, félag sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var stofnað 2. desember 1937

Stjórn kjörin 11. febrúar 2026

Formaður

Gerður Ringsted | 866 0667

Varaformaður

Aðalheiður Steina Guðmundsdóttir | 772 3220

Ritari
Kristina Björk Arnórsdóttir |

Meðstjórnendur
Auður B. Ólafsdóttir
| 659 7677

Freydís Lilja Þormóðsdóttir |


Varastjórn

Arna Rut Gunnarsdóttir |

Embla Blöndal Ásgeirsdóttir |

Svava Þ. Hjaltalín |


Lög Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri

I kafli. Nafn félags og tilgangur.

1. gr.

Félagið heitir Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn og er félag sjálfstæðiskvenna á Akureyri Félagssvæði og lögheimili þess er á Akureyri.

Markmið félagsins er að:


2. gr. a.
Efla konur til þátttöku í stjórnmálum og stjórnmálaumræðu innan Sjálfstæðisflokksins. Félagið skal á hverjum tíma berjast fyrir hagsmunamálum kvenna og tryggja að þeirra sé gætt við mótun og framkvæmd stefnu Sjálfstæðisflokksins.

b.
Að fylgja eftir því ákvæði skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins að jafnrétti kynjanna er eitt af grunngildum Sjálfstæðisflokksins

II kafli. Aðild

3. gr.

Aðild að félaginu eiga allar flokksbundnar sjálfstæðiskonur sem hafa lögheimili á Akureyri og eru ekki flokksbundnar í öðrum stjórnmálaflokkum.


4. gr.

Hver sem óskar inngöngu í félagið skal skrá sig rafrænt á vef Sjálfstæðisflokksins eða senda inn skriflega umsókn á þar til gerðu eyðublaði sem finna má á vef flokksins.


5. gr.

Einungis fullgildir meðlimir Sjálfstæðiskvennafélags Varnar geta valist til trúnaðarstarfa fyrir félagið í stjórnir, ráð, nefndir, í fulltrúaráð flokksins, eiga rétt á setu á landsfundi og að gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Hægt er að sjá hvort viðkomandi er skráður í félagið með því að fara inn á "mitt svæði" á vef Sjálfstæðisflokksins.


6. gr.

Stjórnin getur vikið úr félaginu hverjum þeim, sem að áliti hennar brýtur lög félagsins eða vinnur gegn stefnu þess. Til samþykktar slíkri brottvikningu þarf a.m.k. 2/3 greiddra atkvæða. Ákvörðun þeirri má áfrýja til stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.


III. kafli. Stjórn félagsins og starfsemi

7. gr. a)
Stjórn annast málefni félagsins og er heimilt að kjósa sérstakar undirnefndir í sérstök verkefni.

b)
Stjórn félagsins skipa 5 konur að formanni og varaformanni meðtöldum. Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórn skal kosin á aðalfundi til eins árs í senn, þrír meðstjórnendur og þrír í varastjórn.

c)
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skal stjórnin skipta með sér verkum. Kosið skal um embætti varaformanns og ritara.

d)
Láti formaður af embætti tekur varaformaður sjálfkrafa við formennsku. Víki stjórnarmaður skal fyrsti varamaður taka fast sæti sem aðalmaður í stjórn. Taki enginn varamanna sæti skal boða til félagsfundar og kjósa nýjan stjórnarmann og varamenn.

8. gr.
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en í lok febrúar ár hvert. Til aðalfundar skal boða með minnst 7 daga fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagabreytingar.
3. Kosning formanns, stjórnar og varastjórnar
4. Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna.
5. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð Norðausturkjördæmis.
6. Önnur mál.

Samþykki aðalfundar þarf til við breytingu á röðun dagskrár. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála á aðalfundi, nema annars sé getið. Framboð til stjórnar, sem og aðrar tillögur fyrir fund, skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund. Að afloknum aðalfundi, skal stjórnin senda stjórn fulltrúaráðs og stjórn kjördæmisráðs skýrslu um starfsemi félagsins á árinu ásamt skrá yfir fullgilda félagsmenn miðað við þann aðalfund. Stjórn félagsins er sjálfkjörin í fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, skv. lögum fulltrúaráðs.


9. gr.
Aðrir fundir skulu haldnir svo sem þurfa þykir og skal stjórn félagsins að jafnaði kappkosta að rækja öðru leyti hvers konar starfsemi, sem er líkleg til að efla félagið og styrkja málstað þess. Almennan félagsfund skal halda ef minnst 20 félagskonur krefjast þess skriflega til stjórnar og greina frá tilefni fundarins. Stjórn skal þá boða til fundar án tafar og skal fundur haldinn innan tveggja vikna frá því að krafan kemur fram. Um almenna félagsfundi og boðun þeirra gilda sömu reglur og um aðalfund eftir því sem við á.

10. gr.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Stjórnarfundi skal að jafnaði boða með sólarhrings fyrirvara. Stjórnarfundur er löglegur er meirihluti stjórnarmanna situr fund. Óski fjórðungur stjórnarmanna eða fleiri eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því að formanni berst slík ósk. Öllum stjórnarmönnum er heimilt að leggja fram ályktanir á stjórnarfundi. Ályktanir í nafni félagsins verða að hljóta a.m.k. samþykki 3 af 5 stjórnarmönnum félagsins.

11. gr.
Lög þessi eru samin með hliðsjón af skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins og gilda ákvæði þeirra um Sjálfstæðiskvennafélag Varnar eftir því sem við á.

12. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 atkvæði allra fundarkvenna til að breytingar nái fram að ganga.

13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.


Þannig samþykkt á aðalfundi 15. febrúar 2024