Varabæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Arna Rut Gunnarsdóttir
Arna Rut er fædd á Akureyri 6. september 1982. Hún er framkvæmdastjóri Tengis á Akureyri. Arna Rut er svæfingahjúkrunarfræðingur, með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum og stjórnun, diplómu í fyrirtækjalögfræði og með meistaragráðu í viðskiptalögfræði.
Arna Rut hefur verið varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og varaformaðr velferðarráðs frá 2026. Hún hefur setið í varastjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar og Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, frá 2026.
Arna Rut er gift Ólafi Tryggva Ólafssyni og eiga þau fjögur börn.
Þórhallur Harðarson
Þórhallur fæddist á Húsavík 12. janúar 1973. Hann er menntaður viðskiptafræðingur með MLM mastersgráðu (Leadership and Management/forysta og stjórnun) og einnig útskrifaður úr Hótel- og veitingaskóla, er lærður matreiðslumaður. Þórhallur sótti diplómunám í rekstrarfræði við HA.
Frá því í janúar 2015 hefur Þórhallur búið og starfað á Akureyri fyrst sem mannauðsstjóri og síðar fjármálastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) sem er sameinuð stofnun sex heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Áður var hann rekstrarstjóri, fulltrúi forstjóra og forstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA).
Áður átti hann og rak ásamt maka og foreldrum Fosshótel Húsavík sem einnig rak um tíma Gamla Bauk veitingahús og skólamötuneyti Borgarholtsskóla á Húsavík. Þá starfaði Þórhallur sem veitingastjóri fyrir Bandaríkjaher.
Þórhallur var gjaldkeri stjórnar kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 2014-2021 og sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar um nokkurra ára skeið. Var þar áður í stjórnum sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði, Fljótsdalshrepp og Borgarfirði Eystra í samtals sjö ár - var formaður félaga og líka fulltrúaráðsins.


