Borgarhlutverk Akureyrarbæjar

Enn sterkari rödd Akureyrarbæjar

Eflum hagsmunagæslu og stöðu bæjarins á landsvísu

  • Við ætlum að stórefla hagsmunagæslu Akureyrarbæjar með því að standa vörð um lykil stofnanir bæjarins og vinna að nýjum hugmyndum til að styrkja sveitarfélagið og nærsveitir.


  • Við ætlum að beita okkur fyrir öruggari og betri samgöngum við höfuðborgarsvæðið í lofti og á landi, stytta ferðatíma og tryggja hagkvæmar flutninga fyrir atvinnulífið.


  • Sterk heilbrigðisþjónusta: Við ætlum að standa vörð um sterka heilbrigðisþjónustu. Við ætlum að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri og efla mönnun með markvissum ívilnunum, svo sem með forgangi að leikskólaplássum og stuðningi sem laðar heilbrigðisstarfsfólk til búsetu til frambúðar. Við munum beita okkur fyrir því að hlutverk varasjúkrahússins verði skýrt skilgreint og að nægjanlegt fjármagn frá ríkinu fylgi þeirri þjónustu sem þar á að veita.


  • Við ætlum að efla öryggi og viðbragðsgetu á Norðurlandi með sterkari löggæslu, öflugri björgunargetu og nýrri björgunarmiðstöð á Akureyri. Jafnframt munum við beita okkur fyrir staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.


  • Við ætlum að styðja við uppbyggingu Verkmenntaskólans á Akureyri með markvissum þrýstingi á ríkið um tryggt fjármagn til að mæta vaxandi þörf fyrir iðn- og verkmenntun.


  • Við ætlum að berjast fyrir öruggum og reglulegum samgöngum við Hrísey og Grímsey allt árið og tryggja áframhaldandi byggðakvóta og meiri fyrirsjáanleika við úthlutun hans.


  • Við ætlum að efla Háskólabæinn Akureyri með uppbyggingu stúdentagarða í samstarfi við Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) og styrkja þannig bæði námsumhverfi og húsnæðismarkað.


  • Blómlegt menningarlíf fyrir alla: Við viljum að Akureyri verði áfram miðpunktur menningar á landsbyggðinni þar sem fjölbreytt og atvinnuskapandi menningarlíf blómstrar með sterkari menningarsamningi með framlagi ríkis og sveitarfélagsins.


Akureyrarbær gegnir lykilhlutverki sem þjónustu-, mennta- og atvinnumiðja fyrir Norðurland. Markmið okkar er að styrkja stöðu bæjarins á landsvísu með markvissri hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og samvinnu við nágrannasveitarfélög. Með skýrri framtíðarsýn tryggjum við að opinber þjónusta, störf og uppbygging dreifist með sanngjörnum hætti um landið.


Við ætlum að standa vörð um helstu ríkisstofnanir og lykilinnviði í bænum og vinna jafnframt að því að laða ný verkefni og opinber störf til svæðisins. Markmið er að styrkja stöðu bæjarins sem miðju þjónustu og stjórnsýslu á Norðurlandi og auka stöðugleika í atvinnulífi og byggðaþróun.


Samgöngur skipta sköpum fyrir lífsgæði íbúa og samkeppnishæfni atvinnulífs. Við munum beita okkur fyrir öruggari og hraðari samgöngum við höfuðborgarsvæðið, bæði með bættum og styttri vegum til Reykjavíkur og áreiðanlegum flugsamgöngum þar sem við stöndum vörð um millilandaflugvöllinn á Akureyri. Markmið er að stytta ferðatíma, bæta öryggi og tryggja hagkvæmar flutningsleiðir fyrir fyrirtæki og íbúa.


Sterk heilbrigðisþjónusta er lykilatriði í aðlaðandi samfélagi. Við ætlum að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri og vinna að því að mönnun og þjónusta þess verði tryggð til lengri tíma, meðal annars með hvötum sem laða heilbrigðisstarfsfólk til búsetu. Markmið er að hlutverk varasjúkrahúss verði skýrt skilgreint og fjármagn tryggt frá ríkinu. Við ætlum að þrýsta á að hjúkrunarrýmum fjölgi raunverulega á kjörtímabilinu með uppbyggingu á 140 rýmum í Þurstaholti.


Við viljum efla löggæslu og sýnileika lögreglu á Akureyri í góðu samstarfi við ríkið. Við viljum efla viðbragðsgetu og öryggi á Norðurlandi og á norðurslóðum með uppbyggingu nýrrar öryggis- og björgunarmiðstöðvar á Akureyri sem sameinar aðstöðu helstu viðbragðsaðila og styrkir samhæfingu í almannavörnum. Slík miðstöð mun bæta viðbragðstíma, auka öryggi íbúa og styrkja hlutverk bæjarins sem lykilmiðju þjónustu og eftirlits á norðurslóðum. Samhliða því munum við beita okkur fyrir því að ein af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands verði staðsett á Akureyri til að tryggja hraðari viðbrögð við slysum og neyðartilvikum á landi, hafi og á norðurslóðum.


Menntun og þekking eru lykilþættir í framtíðarþróun svæðisins. Við styðjum áfram uppbyggingu Verkmenntaskólinn á Akureyri og eflingu Háskólins á Akureyri, meðal annars með uppbyggingu stúdentaíbúða í samstarfi við Félagsstofnun stúdenta. Markmið okkar er að styrkja stöðu bæjarins sem öflugs mennta- og þekkingarseturs á landsbyggðinni.


Við viljum tryggja jafnræði íbúa í Hrísey og Grímsey með öruggum og reglulegum samgöngum allt árið og öflugum byggðakvóta sem styður atvinnu og búsetu. Markmið er að skapa stöðug rekstrarskilyrði fyrir samfélögin í eyjunum og efla þannig framtíð byggðar þar.


Við viljum einnig tryggja áfram blómlegt menningarlíf með öflugri samvinnu ríkis og sveitarfélags. Fjölbreytt menningarstarf styrkir samfélagið, eykur aðdráttarafl bæjarins og skapar tækifæri í ferðaþjónustu og skapandi greinum.


Með markvissri hagsmunagæslu, sterkari innviðum og skýrri framtíðarsýn viljum við tryggja að Akureyri haldi áfram að vaxa sem öflug miðja mannlífs og atvinnu á Norðurlandi.