Skráning á lokahóf golfmótsins hér að neðan!
Föstudaginn 25. september verður blásið til golfmóts á Jaðarsvelli!
Spilaðar verða 9 holur í Texas Scramble, þar sem tveir kylfingar mynda lið. Ræst verður út af öllum teigum kl. 17:00 og mæting er í golfskálann á Jaðri eigi síðar en 16:45.
Vegleg verðlaun verða í boði, meðal annars:
- Fyrsta, annað og þriðja sæti.
- Nándarverðlaun
- Fleiri skemmtileg verðlaun og óvæntar uppákomur
Greiðslu er krafist við skráningu og mótsgjald er óendurkræft eftir 15. september.
Kylfingar sem ekki eru skráðir í golfklúbb geta haft samband við skrifstofu GA í skrifstofa@gagolf.is eða síma 462-2974 til að skrá sig.
Kvöldið endar ekki á golfvellinum!
Upplýsingar um veisluna um kvöldið verða kynntar síðar!
Frekari upplýsingar inná islendingur.is og golfbox.dk
hlökkum til að sjá ykkur á Jaðri!
- Lokahóf - Líka fyrir þá sem ekki keppa í mótinu!
Eins og í fyrra þá verður að að loknu móti haldið lokahóf á Jaðar Bistro, þar sem verðlaunaafhending og önnur dagskrá fer fram. Einnig verður boðið uppá veglega hamborgaraveislu á 4.000kr. Lokahófið er opið öllum. Skráning í hamborgaraveisluna fer fram hér að neðan. Barinn verður að sjálfsögðu opinn.
ATH!
Miðaverð er 4.000 kr. og er skráning ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Gengið er frá greiðslu með því að millifæra á reikning Fulltrúaráðs: bankanúmer: 0565-26-008838, kennitala: 580190-2519.

