Íþrótta- og tómstundamál
Öflugt íþróttastarf fyrir alla án hindrana
Klárum kröftugu uppbygginguna sem þegar er hafin og tryggjum að aðstaða og tækifæri haldi í við vöxt bæjarins
- Við ætlum að ljúka þeirri uppbyggingu sem þegar er hafin og vinna heildstæða greiningu á framtíðarþörf íþróttamannvirkja í samráði við alla hagsmunaaðila.
- Við ætlum að tryggja að öll börn, óháð efnahag, hafi raunverulegt aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi með áframhaldandi hækkun frístundastyrks.
- Við ætlum að bæta aðgengi fatlaðra barna að íþrótta- og tómstundastarfi og auka möguleika þeirra til þátttöku.
- Við ætlum að auka við sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla.
- Við ætlum að halda áfram að efla þjónustu frístundastrætó.
- Við ætlum að halda áfram að byggja upp öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa.
Íþrótta- og tómstundastarf gegnir lykilhlutverki í lýðheilsu, félagslegri þátttöku og uppeldi barna og ungmenna. Markmið okkar er að Akureyrarbær verði áfram leiðandi í öflugu og aðgengilegu íþrótta- og frístundastarfi fyrir alla aldurshópa.
Við ætlum að klára þá uppbyggingu sem þegar er hafin. Samhliða því verður unnin heildstæð greining á framtíðarþörfum íþróttastarfs í nánu samráði við íþróttafélög, notendur og aðra hagsmunaaðila. Markmið okkar er að tryggja að aðstaða og innviðir haldi í við fjölgun iðkenda og breyttar þarfir samfélagsins til lengri tíma.
Við viljum tryggja að öll börn, óháð efnahag, hafi raunverulegt aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi. Við munum halda áfram að hækka frístundastyrkinn og vinna markvisst að því að kostnaður verði ekki hindrun fyrir þátttöku. Markmið er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu starfi og stuðla þannig að bættri heilsu og sterkari einstaklingum.
Sérstök áhersla verður lögð á að bæta aðgengi og auka möguleika fatlaðra barna til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Við viljum þróa úrræði og aðstöðu sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum og tryggir að öll börn geti tekið þátt á eigin forsendum.
Við ætlum að efla þjónustu frístundastrætó til að auðvelda börnum að sækja íþrótta- og frístundastarf óháð búsetu. Með betri tengingum og auknu aðgengi tryggjum við aukið jafnræði og gerum þátttöku einfaldari fyrir fjölskyldur.
Með markvissri uppbyggingu, auknu aðgengi og sterkum stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf viljum við stuðla að betri heilsu, aukinni þátttöku og öflugra samfélagi.

