Skipulagsmál
Skýrt skipulag fyrir stórhuga framtíð
Uppfærum aðalskipulag sem styður við áframhaldandi vöxt bæjarins og tryggjum framboð íbúða- og atvinnulóða til framtíðar
- Við ætlum að uppfæra aðalskipulag bæjarins með skýrri framtíðarsýn um uppbyggingu íbúða, atvinnusvæða, samgangna og bæjarþróun.
- Við ætlum að styðja við séreignarstefnuna og auðvelda ungu fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að tryggja hraðari uppbyggingu oghagkvæmara húsnæði.
- Við ætlum að byggja bílastæðahús í miðbænum, milli Hólabrautar og Brekkugötu, til að styðja við öflugt bæjarlíf.
- Við ætlum að fjölga bílastæðum við heilsugæsluna í Sunnuhlíð.
- Við ætlum að bæta umferðalausnir, almenningssamgöngur og umhirðu bæjarins með aukinni áherslu á græn svæði, snyrtimennsku og aðgerðir gegn svifryki.
Skipulag sveitarfélagsins hefur bein áhrif á húsnæðisverð, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og daglegt líf íbúa. Markmið okkar er að tryggja fyrirsjáanlega og framsýna þróun Akureyrarbæjar þannig að bærinn geti vaxið með heilbrigðum og sjálfbærum hætti.
Við ætlum að uppfæra aðalskipulag bæjarins með skýrri framtíðarsýn til næstu áratuga. Tryggt verði tryggt nægt framboð íbúðar- og atvinnusvæða, markviss þróun samgangna og skýr stefna um uppbyggingu hverfa og miðbæjar. Markmið okkar er að skipulagið styðji bæði við fjölgun íbúa og aukna atvinnustarfsemi án þess að innviðir verði undir of miklu álagi.
Við ætlum að hraða skipulagsferlum og tryggja að húsnæðisframboð mæti þörfum ólíkra hópa. Áhersla verður lögð á fjölbreytt húsnæði þar á meðal hagkvæmar íbúðir og íbúðir fyrir eldri borgara. Markmiðið er skýrt: að árleg uppbygging íbúða fylgi raunverulegri íbúafjölgun og eftirspurn á markaði svo ungt fólk og fjölskyldur geti fest rætur í bænum.
Við ætlum að endurskoða gjaldtöku og skilyrði sem tengjast uppbyggingu í nýjum hverfum með það að markmiði að lækka byggingarkostnað og stuðla að hóflegra húsnæðisverði. Samhliða því styðjum við séreignarstefnuna og viljum auðvelda fyrstu kaupendum að komast inn á húsnæðismarkaðinn.
Líflegur og aðgengilegur miðbær er lykilatriði í aðlaðandi bæjarumhverfi. Við ætlum að ráðast í byggingu bílastæðahúsa í miðbænum, það fyrsta á milli Hólabrautar og Brekkugötu, sem mun fjölga bílastæðum verulega og styðja við verslun, þjónustu og menningarlíf. Markmiðið er að bæta aðgengi að miðbænum án þess að skerða ásýnd hans eða gæði almenningsrýma.
Við ætlum að fjölga bílastæðum við Heilsugæsluna í Sunnuhlíð. Með auknu framboði bílastæða viljum við gera aðgengi að þjónustunni þægilegra og tryggja betra flæði í daglegri notkun.
Við ætlum að bæta umferðarlausnir og almenningssamgöngur innan bæjarins, styrkja öruggari göngu- og hjólaleiðir og auka umhirðu grænna svæða. Hreint og snyrtilegt bæjarumhverfi hefur bein áhrif á lífsgæði og ímynd sveitarfélagsins. Markmið okkar er að draga úr svifryki, bæta viðhald opinna svæða og tryggja öruggt og aðlaðandi umhverfi fyrir alla íbúa.
Með skýru skipulagi, auknu húsnæðisframboði og markvissir uppbyggingu leggjum við grunn að áframhaldandi vexti bæjarins og betri lífskjörum íbúa.

