Atvinnumál
Aukum samkeppnishæfni fyrir sterkt atvinnulíf
Gerum Akureyrarbæ að besta bæjarfélaginu
til að reka fyrirtæki
- Við ætlum að styrkja samkeppnishæfni og tekjugrunn Akureyrarbæjar með markvissri stefnu sem styður við fyrirtækin sem hér eru, laðar að stærri fyrirtæki, fjölgar vel launuðum störfum og styður betur við frumkvöðla og nýsköpun.
- Við ætlum að gera Akureyrarbæ að enn betri stað fyrir fyrirtæki með lægri álögum á atvinnulíf og nægu framboði fjölbreyttra atvinnulóða.
- Við ætlum að leggja fram skýra framtíðarsýn fyrir hafnarsvæðin þar sem mikil tækifæri liggja til atvinnuuppbyggingar og vaxtar.
- Við ætlum að elfa heilsársferðaþjónustu með uppbyggingu á Hlíðarfjalli og á golfsvæðinu.
Öflugt atvinnulíf er undirstaða velferðar og lífsgæða í Akureyrarbæ. Markmið okkar er að gera sveitarfélagið að einum besta stað landsins til að stofna og reka fyrirtæki. Skapa vel launuð störf og styrkja tekjugrunn bæjarins til framtíðar.
Við ætlum að bæta samkeppnishæfni bæjarins með því að lækka álögur á atvinnulíf og tryggja nægt framboð byggingarhæfra atvinnulóða. Fyrirtæki eiga að geta hafið framkvæmdir án óþarfa tafa. Markmið okkar er að ávallt sé til staðar skilgreint framboð atvinnulóða til næstu ára og að afgreiðslutími helstu leyfisveitinga styttist verulega á kjörtímabilinu.
Við munum móta markvissa atvinnustefnu með það að leiðarljósi að laða að stærri fyrirtæki og opinber störf, fjölga vel launuðum störfum og skapa stöðugri tekjur fyrir sveitarfélagið. Með fjölbreyttara atvinnulífi styrkist fjárhagslegur grundvöllur bæjarins og svigrúm skapast til lægri álaga og aukinnar þjónustu.
Við ætlum að efla frumkvöðlastarf og nýsköpun með sterkari tengingu atvinnulífs, sveitarfélags og Háskólans á Akureyri. Stuðlað verður að auknu starfsnámi, nýsköpunarverkefnum meðal annars með Þróunarsjóði Fræðslu- og lýðheilusviðs, og aðstöðu sem styður sprotafyrirtæki og ný störf í þekkingariðnaði. Markmið er að fjölga nýsköpunarverkefnum og efla samstarf við atvinnulífið ár frá ári.
Við munum setja fram skýra framtíðarsýn fyrir hafnarsvæðin þar sem mikil tækifæri liggja til atvinnuuppbyggingar. Þar er mögulegt að styrkja tengda starfsemi sjávarútvegs, flutninga og ferðaþjónustu og skapa ný verðmæti fyrir svæðið. Tækifæri eru til uppbyggingar á Krossanesi, stækkunar atvinnusvæða og betri nýtingar þeirra innviða sem þegar eru til staðar. Hugmyndir um uppbyggingu á Dysnesi þurfa að komast til framkvæmda með skýrri og raunhæfri framkvæmdaáætlun fyrir hafnarsvæðin í heild.
Ferðaþjónusta er ein af burðarstoðum atvinnulífs á svæðinu og við viljum efla hana enn frekar með áherslu á heilsárs starfsemi. Uppbygging og þróun í Hlíðarfjalli og á golfsvæðinu getur skapað aukin tækifæri til verðmætasköpunar og fjölgunar starfa. Markmið er að auka nýtingu innviða yfir allt árið og styrkja stöðu bæjarins sem áfangastaður fyrir íþrótta- og útivistartengda ferðaþjónustu. Við viljum halda áfram að markaðssetja sveitarfélagið sem góðan stað til að búa á, reka fyrirtæki og ferðast til.
Með skýrri stefnu, auknu framboði lóða og öflugri nýsköpun viljum við skapa umhverfi þar sem fyrirtæki vaxa, störfum fjölgar og samfélagið styrkist til framtíðar.

