Stefnumálin okkar
Fyrir enn betri Akureyri
Ábyrg fjármál tryggja sterka framtíð
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi.
- Við ætlum að byggja áfram á sterkum grunni
með ábyrgri og framsýnni fjármálastjórn.
- Við ætlum að lækka skuldir sveitarfélagsins og bæta hag íbúa og fyrirtækja með aðhaldi í stjórnunarkostnaði og betri nýtingu tæknilausna og gervigreindar. Þar sem það á við verður verkefnum útvistað til að auka hagkvæmni.
- Við ætlum að bæta stafræna þjónustu og einfalda ferla þannig að þjónusta bæjarins verði skilvirkari, hraðari og samfelldari.
Lægri skattar og gjöld fyrir íbúa og fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta og gjaldskrár.
- Við ætlum að halda áfram að lækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki með lægri fasteignasköttum og lægri gjaldskrám.
Aukum samkeppnishæfni fyrir sterkt atvinnulíf
Gerum Akureyrarbæ að besta bæjarfélaginu til að reka fyrirtæki.
- Við ætlum að styrkja samkeppnishæfni og tekjugrunn Akureyrarbæjar með markvissri stefnu sem styður við fyrirtækin sem hér eru, laðar að stærri fyrirtæki, fjölgar vel launuðum störfum og styður betur við frumkvöðla og nýsköpun.
- Við ætlum að gera Akureyrarbæ að enn betri stað fyrir fyrirtæki með lægri álögum á atvinnulíf og nægu framboði fjölbreyttra atvinnulóða
- Við ætlum að leggja fram skýra framtíðarsýn fyrir hafnarsvæðin þar sem mikil tækifæri liggja til atvinnuuppbyggingar og vaxtar.
- Við ætlum að elfa heilsársferðaþjónustu með uppbyggingu á Hlíðarfjalli og á golfsvæðinu.
Skýrt skipulag fyrir stórhuga framtíð
Uppfærum aðalskipulag sem styður við áframhaldandi vöxt bæjarins og tryggjum framboð íbúða- og atvinnulóða til framtíðar.
- Við ætlum að uppfæra aðalskipulag bæjarins með skýrri framtíðarsýn um uppbyggingu íbúða, atvinnusvæða, samgangna og bæjarþróun.
- Við ætlum að styðja við séreignarstefnuna og auðvelda ungu fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að tryggja hraðari uppbyggingu oghagkvæmara húsnæði.
- Við ætlum að endurskoða gjöld sem lögð eru á framkvæmdir í nýjum hverfum til að stuðla að lægra húsnæðisverði.
- Við ætlum að byggja bílastæðahús í miðbænum, milli Hólabrautar og Brekkugötu, til að styðja við öflugt bæjarlíf.
- Við ætlum að fjölga bílastæðum við heilsugæsluna í Sunnuhlíð.
- Við ætlum að bæta umferðalausnir, almenningssamgöngur og umhirðu bæjarins með aukinni áherslu á græn svæði, snyrtimennsku og aðgerðir gegn svifryki.
Öflug velferð fyrir betri lífsgæði á öllum æviskeiðum
Tryggjum fjölbreyttar húsnæðislausnir, aukið valfrelsi og sterka velferðarþjónustu með heilsueflingu, lífsgæðakjarna og félagsaðstöðu í forgangi fyrir eldri borgara.
- Við ætlum að styðja við uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara og setja kraft í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði fyrir ört stækkandi hóp eldri borgara til að tryggja fjölbreytt val og sjálfstæða búsetu sem lengst.
- Við höldum áfram að styðja við heilsueflingu og virkni eldri borgara með uppbyggingu íþróttamannvirkja, lýðheilsukorti og lýðheilsustyrk fyrir eldri borgara. Við ætlum að tryggja að verkefnið Virk efri ár haldi áfram ásamt því að gera þjónustuna gjaldfrjálsa.
- Við ætlum að halda áfram að tryggja öfluga þjónustu við fatlað fólk með frekari uppbyggingu íbúðalausna og þjónustu.
- Við ætlum að tryggja hóflega gjaldtöku fyrir þjónustu bæjarins t.d. er varðar heimsendan mat, mat og kaffi í þjónustumiðstöðvum bæjarins og vegna heimaþjónustu.
Sterkir skólar fyrir vaxandi samfélag
Eflum grunn- og leikskólastarf og tryggjum fjölbreytt rekstrarform og valfrelsi fyrir fjölskyldur. Klárum að byggja Hagastein og byggjum nýja álmu við Lundarskóla fyrir leik- og grunnskólabörn.
- Við ætlum að halda áfram að efla gjaldfrjálsa leikskóla, efla leikskólana og styðja við faglegt starf. Með fjölgun leikskólaplássa með nýjum leikskólum, Hagasteini og Lundarseli, verður hægt að fjölga innritunar tímabilum yfir árið og bæta þannig þjónustu við fjölskyldur.
- Við ætlum að byggja nýja álmu við Lundarskóla til að mæta fjölgun barna og nýta lóð Lundarsels undir íbúðauppbyggingu sem styrkir hverfið til framtíðar.
- Við ætlum að tryggja sumarvistun fyrir börn framlínu starfsmanna með því að setja á fót þróunarverkefni í samráði við fagaðila á meðan almennar lokanir leikskóla standa yfir.
- Við ætlum að stuðla að bættum námsárangri í góðu samstarfi við starfsmenn í skólum Akureyrarbæjar og leggja áherslu á grunnfærni eins og læsi, íslensku og stærðfræði.
- Við viljum taka upp skýrara einkunnakerfi í tölustöfum, nýta upplýsingatækni betur í skólastarfi, og auka foreldrasamstarf.
- Við ætlum að auka fjölbreytni í rekstrarformi leik- og grunnskóla.
- Við ætlum að efla geðheilbrigðisstuðning og stoðþjónustu í skólum með áframhaldandi þróun á farteymi sérfræðinga sem styðja snemmtæka íhlutun, vellíðan og farsæla skólagöngu barna.
- Við ætlum að auka við sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla.
- Við ætlum að vera öflug brú milli háskóla og atvinnulífs og styrkja samstarf sem skapar fleiri tækifæri til náms og starfa.
Öflugt íþróttastarf fyrir alla án hindrana
Klárum kröftugu uppbygginguna sem þegar er hafin og tryggjum að aðstaða og tækifæri haldi í við vöxt bæjarins.
- Við ætlum að ljúka þeirri uppbyggingu sem þegar er hafin og vinna heildstæða greiningu á framtíðarþörf íþróttamannvirkja í samráði við alla hagsmunaaðila.
- Við ætlum að tryggja að öll börn, óháð efnahag, hafi raunverulegt aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi með áframhaldandi hækkun frístundastyrks
- Við ætlum að bæta aðgengi fatlaðra barna að íþrótta- og tómstundastarfi og auka möguleika þeirra til þátttöku.
- Við ætlum að auka við sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla.
- Við ætlum að halda áfram að efla þjónustu frístundastrætó.
- Við ætlum að halda áfram að byggja upp öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa.
Blómleg menning skapar verðmæti
Styðjum áfram við skapandi greinar, atvinnu og lifandi bæjarlíf.
- Við ætlum að efla áfram menningu og listir markvisst til að skapa störf, styðja við unga og upprennandi listamenn, efla skapandi greinar og styrkja ferðaþjónustu í Akureyrarbæ.
- Við ætlum að halda áfram að styðja við listafólk og frumkvöðla í menningu með aðstöðu, samstarfi og auknum tækifærum til að þróa verkefni.
- Við viljum tryggja að öll börn fái reglulegan aðgang að listum og menningu í gegnum skólastarf.
- Við ætlum að halda áfram að styðja við viðburðahald og hátíðir allt árið sem laða að íbúa og gesti og lífga upp á bæjarlífið.
Enn sterkari rödd Akureyrarbæjar
Eflum hagsmunagæslu og stöðu bæjarins á landsvísu
- Við ætlum að stórefla hagsmunagæslu Akureyrarbæjar með því að standa vörð um lykil stofnanir bæjarins og vinna að nýjum hugmyndum til að styrkja sveitarfélagið og nærsveitir.
- Við ætlum að beita okkur fyrir öruggari og betri samgöngum við höfuðborgarsvæðið í lofti og á landi, stytta ferðatíma og tryggja hagkvæmar flutninga fyrir atvinnulífið.
- Sterk heilbrigðisþjónusta: Við ætlum að standa vörð um sterka heilbrigðisþjónustu. Við ætlum að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri og efla mönnun með markvissum ívilnunum, svo sem með forgangi að leikskólaplássum og stuðningi sem laðar heilbrigðisstarfsfólk til búsetu til frambúðar. Við munum beita okkur fyrir því að hlutverk varasjúkrahússins verði skýrt skilgreint og að nægjanlegt fjármagn frá ríkinu fylgi þeirri þjónustu sem þar á að veita.
- Við ætlum að efla öryggi og viðbragðsgetu á Norðurlandi með sterkari löggæslu, öflugri björgunargetu og nýrri björgunarmiðstöð á Akureyri. Jafnframt munum við beita okkur fyrir staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
- Við ætlum að styðja við uppbyggingu Verkmenntaskólans á Akureyri með markvissum þrýstingi á ríkið um tryggt fjármagn til að mæta vaxandi þörf fyrir iðn- og verkmenntun.
- Við ætlum að berjast fyrir öruggum og reglulegum samgöngum við Hrísey og Grímsey allt árið og tryggja áframhaldandi byggðakvóta og meiri fyrirsjáanleika við úthlutun hans.
- Við ætlum að efla Háskólabæinn Akureyri með uppbyggingu stúdentagarða í samstarfi við Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) og styrkja þannig bæði námsumhverfi og húsnæðismarkað.
- Blómlegt menningarlíf fyrir alla: Við viljum að Akureyri verði áfram miðpunktur menningar á landsbyggðinni þar sem fjölbreytt og atvinnuskapandi menningarlíf blómstrar með sterkari menningarsamningi með framlagi ríkis og sveitarfélagsins.

