Rekstur og stjórnsýsla
Ábyrg fjármál tryggja sterka framtíð
Tryggjum áfram traustan rekstur sem þjónar íbúum og atvinnulífi
- Við ætlum að halda áfram að lækka skatta og gjöld á fólk og fyrirtæki með lægri fasteignasköttum og lægri gjaldskrám.
- Við ætlum að byggja áfram á sterkum grunni með ábyrgri og framsýnni fjármálastjórn.
- Við ætlum að lækka skuldir sveitarfélagsins og bæta hag íbúa og fyrirtækja með aðhaldi í stjórnunarkostnaði og betri nýtingu tæknilausna og gervigreindar. Þar sem það á við verður verkefnum útvistað til að auka hagkvæmni.
- Við ætlum að bæta stafræna þjónustu og einfalda ferla þannig að þjónusta bæjarins verði skilvirkari, hraðari og samfelldari.
Ábyrg fjármálastjórn er forsenda þess að sveitarfélagið geti veitt góða þjónustu, haldið álögum í skefjum og fjárfest í uppbyggingu til framtíðar. Við viljum reka sveitarfélagið áfram af festu og skynsemi þannig að íbúar og fyrirtæki njóti stöðugleika og fyrirsjáanleika.
Við ætlum að halda áfram að lækka álögur með því að nýta betur þá hagkvæmni sem skapast í rekstri. Markmið okkar er að fasteignaskattar og þjónustugjöld verði samkeppnishæf við önnur sambærileg sveitarfélög og að gjaldskrár hækki ekki umfram verðbólgu, heldur stefnum við að lækkun.
Við munum leggja áherslu á að lækka skuldir sveitarfélagsins og styrkja þannig fjárhagslega stöðu þess til lengri tíma. Markmið okkar er að skuldahlutfall samstæðunnar lækki jafnt og þétt á kjörtímabilinu og að rekstur A-hluta skili stöðugum rekstrarafgangi sem skapar svigrúm til fjárfestinga og lægri álaga.
Til að ná þessu munum við nýta stafrænar lausnir og gervigreind markvisst til að bæta vinnuferla, stytta afgreiðslutíma erinda og lækka rekstrarkostnað til lengri tíma. Samhliða því verður leitað leiða til að útvista sérhæfðum verkefnum þar sem það reynist hagkvæmara en eigin rekstur. Þá ætlum við að styrkja tekjugrunna rekstrarins með sókn í fjölgun íbúa og fyrirtækja í bænum.
Við ætlum einnig að halda áfram uppbyggingu stafrænnar þjónustu þannig að íbúar geti sinnt flestum erindum sínum við bæinn á einum stað og án óþarfa biðar. Markmið er að meirihluti umsókna og samskipta verði stafrænn og að skilgreindur afgreiðslutími liggi fyrir í helstu þjónustuþáttum.
Með ábyrgum rekstri, skýrri forgangsröðun og aukinni skilvirkni getum við tryggt að fjármunir nýtist fyrst og fremst í þjónustu við íbúa og uppbyggingu samfélagsins.

