Menntamál
Sterkir skólar fyrir vaxandi samfélag
Eflum grunn- og leikskólastarf og tryggjum fjölbreytt rekstrarform og valfrelsi fyrir fjölskyldur. Klárum að byggja Hagastein og byggjum nýja álmu við Lundarskóla fyrir leik- og grunnskólabörn
- Við ætlum að halda áfram að efla gjaldfrjálsa leikskóla, efla leikskólana og styðja við faglegt starf. Með fjölgun leikskólaplássa með nýjum leikskólum, Hagasteini og Lundarseli, verður hægt að fjölga innritunar tímabilum yfir árið og bæta þannig þjónustu við fjölskyldur.
- Við ætlum að byggja nýja álmu við Lundarskóla til að mæta fjölgun barna og nýta lóð Lundarsels undir íbúðauppbyggingu sem styrkir hverfið til framtíðar.
- Við ætlum að tryggja sumarvistun fyrir börn framlínu starfsmanna með því að setja á fót þróunarverkefni í samráði við fagaðila á meðan almennar lokanir leikskóla standa yfir.
- Við ætlum að stuðla að bættum námsárangri í góðu samstarfi við starfsmenn í skólum Akureyrarbæjar og leggja áherslu á grunnfærni eins og læsi, íslensku og stærðfræði.
- Við viljum taka upp skýrara einkunnakerfi í tölustöfum, nýta upplýsingatækni betur í skólastarfi, og auka foreldrasamstarf
- Við ætlum að auka fjölbreytni í rekstrarformi leik- og grunnskóla.
- Við ætlum að efla geðheilbrigðisstuðning og stoðþjónustu í skólum með áframhaldandi þróun á farteymi sérfræðinga sem styðja snemmtæka íhlutun, vellíðan og farsæla skólagöngu barna.
- Við ætlum að auka við sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla.
- Við ætlum að vera öflug brú milli háskóla og atvinnulífs og styrkja samstarf sem skapar fleiri tækifæri til náms og starfa.
Öflugt menntakerfi er ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins til lengri tíma. Markmið okkar er að efla skólastarf í Akureyri með skýrum áherslum á gæði, fagmennsku, árangur og velferð barna þannig að hvert barn fái raunhæft tækifæri til að ná árangri.
Við ætlum að leggja aukna áherslu á námsárangur og líðan barna í leik- og grunnskólum með skýrum mælikvörðum um framfarir í grunnfærni, sérstaklega í læsi, íslensku og stærðfræði, og tryggja reglulega eftirfylgni. Markmið okkar er að bæta árangur í mælingum og styrkja samstarf við foreldra með virkari þátttöku þeirra í skólasamfélaginu. Samhliða því viljum við taka upp skýrara einkunnakerfi í tölustöfum og nýta upplýsingatækni betur í skólastarfi.
Vellíðan barna er forsenda náms. Við ætlum að efla geðheilbrigðisstuðning og stoðþjónustu í skólum með áframhaldandi þróun farteyma sérfræðinga sem sinna snemmtækri íhlutun. Markmið er að stytta bið eftir stuðningi, bæta líðan barna og draga úr skólaforðun, brottfalli og erfiðleikum síðar á skólagöngu.
Leikskólar gegna lykilhlutverki í bæði menntun og fjölskyldulífi. Við ætlum að halda áfram að efla gjaldfrjálsa leikskóla, styrkja faglegt starf og bæta þjónustu við ungar fjölskyldur. Með uppbyggingu nýrra leikskóla, þar á meðal Hagasteins og Lundasels, verður hægt að fjölga innritunartímabilum og auka sveigjanleika.
Við viljum mæta þörfum samfélagsins með þróunarverkefni um sumarvistun leikskólabarna fyrir framlínustarfsmenn á meðan almennar lokanir standa yfir, enda gegna þessar starfsstéttir lykilhlutverki í að halda uppi grunnþjónustu samfélagsins. Með þessu má draga úr álagi á fjölskyldur og tryggja samfellu í mikilvægri þjónustu, á sama tíma og réttur barna til sumarleyfa og starfsfólks til sumarleyfa er virtur. Verkefnið verður unnið í nánu samráði við leikskólastjórnendur og starfsfólk.
Við ætlum að byggja nýja álmu við Lundarskóla til að mæta fjölgun barna á leik- og grunnskólaaldri í hverfinu og tryggja nútímalega aðstöðu til náms og tómstunda. Samhliða því verður lóð leikskólans nýtt undir íbúðauppbyggingu sem styrkir hverfið og bætir nýtingu lands.
Við viljum auka sveigjanleika og gæði í skólastarfi með því að skoða fjölbreytt rekstrarform í grunnskólum. Þá ætlum við að efla sumarfrístund barna á yngsta stigi grunnskóla svo fjölskyldur hafi betri möguleika á að samræma atvinnu- og fjölskyldulíf.
Við ætlum að gegna virku hlutverki sem brú milli Háskólans á Akureyri og atvinnulífsins með það að markmiði að styrkja tengsl náms og starfa. Með markvissu samstarfi viljum við auka tækifæri til starfsnáms, efla sameiginleg nýsköpunar- og þróunarverkefni og tryggja að menntun taki mið af raunverulegum þörfum atvinnulífsins. Slík nálgun styður bæði við betri atvinnumöguleika fyrir nemendur að námi loknu og eykur aðgengi fyrirtækja að hæfu starfsfólki.
Með skýrri stefnu um gæði, vellíðan og samstarf viljum við byggja upp menntakerfi sem styður við börn, fjölskyldur og framtíð samfélagsins í heild.

