Menningarmál

Blómleg menning skapar verðmæti

Styðjum áfram við skapandi greinar, atvinnu og lifandi bæjarlíf

  • Við ætlum að efla áfram menningu og listir markvisst til að skapa störf, styðja við unga og upprennandi listamenn, efla skapandi greinar og styrkja ferðaþjónustu í Akureyrarbæ. 


  • Við ætlum að halda áfram að styðja við listafólk og frumkvöðla í menningu með aðstöðu, samstarfi og auknum tækifærum til að þróa verkefni.


  • Við viljum tryggja að öll börn fái reglulegan aðgang að listum og menningu í gegnum skólastarf.


  • Við ætlum að halda áfram að styðja við viðburðahald og hátíðir allt árið sem laða að íbúa og gesti og lífga upp á bæjarlífið. 

Menning og listir eru órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd Akureyrarbæjar og gegna lykilhlutverki í að skapa líflegt, aðlaðandi og fjölbreytt samfélag. Markmið okkar er að nýta menningu markvisst sem drifkraft atvinnu, nýsköpunar og ferðaþjónustu, á sama tíma og hún auðgar daglegt líf íbúa.


Við ætlum að styðja áfram við skapandi greinar og listafólk með því að bæta aðstöðu, efla samstarf og skapa fleiri tækifæri til þróunarverkefna. Sérstök áhersla verður lögð á að styðja unga og upprennandi listamenn, þannig að þeir geti haslað sér völl og byggt upp starfsemi á svæðinu. Markmið okkar er að styrkja menningarumhverfið sem raunhæfan starfsvettvang og auka verðmætasköpun innan skapandi greina.


Við viljum efla viðburðahald og hátíðir yfir allt árið. Slíkir viðburðir gegna mikilvægu hlutverki í að laða að gesti, styrkja ferðaþjónustu og lífga upp á bæjarlífið. Markmið er að auka fjölbreytni viðburða og dreifa þeim betur yfir árið til að styðja við heilsársferðaþjónustu og jafna álag.


Við ætlum að tryggja að listir og menning séu aðgengilegar öllum, sérstaklega börnum og ungmennum. Með markvissri tengingu við skólastarf viljum við að öll börn fái reglulegan aðgang að listum og skapandi námi sem styður við þroska, sköpunargleði og víðsýni.


Með öflugum stuðningi við menningu og listir viljum við styrkja stöðu Akureyrarbæjar sem leiðandi menningarbæjar á landsbyggðinni, skapa ný tækifæri í atvinnulífi og auka lífsgæði íbúa.