Ragnar Sigurðsson - framboðskynning


Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Reyðarfirði, gefur kost á sér í 3. - 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 29. maí nk.
Ragnar er 40 ára , búsettur á Reyðarfirði ásamt konunni sinni, Þórunni Hyrnu Víkingsdóttur og þremur börnum þeirra; Bergþór i Flóka, Steingrím i Þorra og Sigríði Iðu.
Ragnar er lögfræðingur að mennt og með MLM gráðu í forystu og stjórnun og starfar sem framkvæmdastjóri hjúkrunarheimila Fjarðabyggðar sem og er starfandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.
Ragnar hefur verið virkur í starfi flokksins um langa tíð. Fyrst sem stjórnarmaður og síðar formaður Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði en Ragnar er uppalinn Hafnfirðingur og tók þar sín fyrstu spor í stjórnmálum. Hann flutti svo norður til Akureyrar árið 200 6 og fór í Há skólann á Akureyri. Þar kynntist hann Þórunni og bjuggu þau saman á Grænhóli, Akureyri, þar til þau fluttu austur á Reyðarfjörð árið 2010 þegar Ragnar tók við ritstjórn Austurgluggans.
Ragnar hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn , setið í stjórnum félaga og samtaka . Hér gefur að líta stutta samantekt á þeim störfum:
- Stjórn Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði 1998 – 2002 og gegndi formennsku frá 2000 – 2002.
- Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka 2000 – 2002.
- Formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri 2007 – 2009.
- Gæðaráð Háskólans á Akureyri 2007 – 2008.
- Formaður FSHA (félag stúdenta við Háskólann á Akureyri) 2008 – 2010.
- Stjórn LÍH (landssamtök íslenskra háskólanema) 2008 – 2010.
- Varaformaður og gjaldkeri Góðvina Háskólans á Akureyri 2010 – 2011.
- Formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi frá 2011- 2015.
- Formaður kö r fuknattleiksdeildar Fjarðabyggðar frá 2017.
- Stjórn Vísindagarða
- Stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu 2020 – 2021.