Berglind Ósk Guðmundsdóttir - framboðskynning


Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur og varabæjarfulltrúi, Akureyri, gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 29. maí nk.
Berglind Ósk leggur áherslu á frelsi og jafnrétti. Hún telur norðausturlandið þarfnast öflugra og áberandi þingmanna til að vekja athygli á málefnum landshlutans. Gríðarleg verðmætasköpun á landsbyggðinni þarf að endurspeglast í fjármagni til innviðauppbyggingar út á landi.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir , fædd 7. júlí 1993, starfar sem lögfræðingur á rektorsskrifstofu Háskólans á Akureyri. Hún er varabæjarfulltrúi flokksins á Akureyri og formaður stjórnar Fallorku. Berglind Ósk á 5 ára dóttur , Emilíu Margrét .
Berglind Ósk lauk meistaranámi í lögfræði frá HA 2018 en á háskóla árunum tók hún virkan þátt í hagsmunabaráttu stúdenta. Hún situr í stjórn Góðvina Háskólans á Akureyri , einnig í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna , stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna, stjórn S jálfstæðifélagsins á Akureyri og stjórn ungra sjálfstæðismanna á Akureyri .
Það er hagsmunamál allra íslendinga , sér í lagi unga fólksins, að atvinnutækifærin séu fjölbreytt og að jafnt að gengi að menntun og störfum sé tryggt og óháð búsetu . Rafrænar lausnir í opinberri þjónustu er lykilatriði ásamt einföldun á regluverki atvinnulífsins sem skipt getur sköpum fyrir lítil og millistór fyrirtæki á landsbyggðinni , auk þess felast gríðarleg fjárhagsleg verðmæti í verkefninu.
Það er krafa nýrrar kynslóðar að leggja áherslu á loftslagsmál og þar á flokkurinn að láta hendur standa fram úr ermum !