30. apríl 2021

Bæjarmálafundur 3. maí

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi og í fjarfundi á Zoom mánudaginn 3. maí kl. 17:30.

Rætt um ársreikning Akureyrarbæjar (seinni umræða fer nú fram í bæjarstjórn) og skipulagsmál - t.d. um deiliskipulag í Holtahverfi norður, suðurhluta Hlíðahverfis, tjaldsvæðisreit og Skarðshlíð, og Tónatröð. 

Í Kaupangi geta aðeins 20 fundarmenn verið á sama tíma og verða þeir að vera með andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga.


Tengill á fundinn


Fundarstjóri verður Berglind Ósk Guðmundsdóttir, varabæjarfulltrúi