13. nóvember 2025

Skýr stefna - Sterkara Ísland

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar um skýr og öflug stefnumál Sjálfstæðisflokksins sem eru öflugri og farsælli valkostur fyrir landsmenn en skattahækkunarstjórn Kristrúnar Frostadóttur

---

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsta umbótaaflið í íslenskum stjórnmálum. Sú staðreynd skiptir öllu í þeirri stöðu sem þjóðin stendur frammi fyrir. Þegar aðrir setja fram frasa og nýyrði fyrir skattahækkanir setjum við fram skýrar leiðir til raunverulegra umbóta. Skýr stefna – sterkara Ísland. Á laugardaginn var héldum við sjálfstæðismenn vel heppnaðan fund þar sem við ræddum leiðina áfram, en tilgangur fundarins var að senda skýr skilaboð um að landsmenn hafa aðra valkosti en skattahækkunarstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Fyrst efnahagsmálin. Við sjálfstæðismenn berjumst gegn skattahækkunarvæðingu og viljum setja sjálfbæran rekstur ríkisins í forgang. Við leggjum til lægri tekjuskatt á fjölskyldur og fyrirtæki. Við viljum taka tryggingagjaldið til gagngerrar endurskoðunar og hækka veltumörk virðisaukaskatts svo smærri fyrirtæki og einyrkjar fái svigrúm til að ráða, fjárfesta og borga hærri laun. Stöðug ríkisfjármál, agi í útgjöldum og einfaldara regluverk eru forsendur lægri vaxta. Þannig verður meira eftir í veskinu í lok mánaðar og trúverðugleiki eykst í baráttunni við verðbólgu.

Húsnæðismálin eru prófsteinn á stjórnsýslu og forgangsröðun. Draumur fólks um eigið heimili á ekki að fjarlægjast. Við skulum muna að séreignarstefnan er frelsisstefna og leið að því markmiði að launafólk búi við fjárhagslegt sjálfstæði. Við munum auka framboð lóða, stytta afgreiðslutíma leyfa og fækka reglum sem hækka byggingarkostnað án ávinnings fyrir öryggi eða gæði. Við viljum hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað, fella niður stimpilgjöld við íbúðakaup einstaklinga og gera fólki kleift að nota séreignarsparnað betur og lengur. Eign á að vera á allra færi.

Innviðir og orka ráða lífsgæðum á Íslandi til næstu áratuga og þar er markmiðið skýrt. Við viljum klára helstu samgöngumannvirki og jarðgöng á tuttugu og fimm árum með ábyrgri fjármögnun. Lífeyrissjóðir geta tekið þátt á markaðskjörum. Útboð verða gegnsæ og verklistar opinberir. Við nýtum jarðvarma og vatnsafl af skynsemi og tökum nýja tækni í notkun til að lækka orkukostnað heimila og fyrirtækja. Öflugir orkuinnviðir skapa störf, auka framleiðni og styrkja græna samkeppnishæfni landsins.

Sjálfstæðisflokkurinn náði árangri í útlendingamálum

Í útlendingamálum er línan skýr. Vinnandi fólk sem vill leggja sitt af mörkum er velkomið. Þeim sem hingað koma til að misnota kerfið og leggja ekkert til samfélagsins verður vísað frá landi. Svo einfalt er það. Það ber að fylgja lögum og reglum, málsmeðferð verður hraðari og endursendingar verða skilvirkari. Þannig tryggjum við réttlæti og traust á kerfinu. Móttaka á að hefjast við landamærin þannig að umsóknir fái skjóta niðurstöðu og þeir sem fá höfnun komist ekki inn í íslenskt samfélag. Þeir sem fá vernd eiga að fá markvissa aðlögun og við gerum skýra kröfu um þátttöku þeirra í samfélaginu. Þetta er sanngjarnt, skilvirkt og byggir upp traust.

Heilbrigðiskerfið á að þjóna sjúklingum, ekki ferlum. Heilsugæslan verður að vera hryggjarstykkið og Landspítali á að sinna flóknustu tilfellum. Við eigum að nýta sjálfstæðan rekstur þar sem hann styttir bið og bætir gæði. Við viljum fjölga heilbrigðisstarfsfólki, bæta starfsumhverfi og skapa hvata til að laða unga sérfræðinga heim. Betra aðgengi að fjarlækningum um land allt dregur úr ójöfnuði og sparar tíma og fjármuni.

Menntakerfið er grundvöllur framfara og við gerum þá sjálfsögðu kröfu að eftir tíu ára grunnskólanám kunni börnin okkar að lesa, skrifa og reikna. Þá kemur allt hitt. Við viljum skýrar og gagnlegar mælingar á árangri sem kennarar og foreldrar geta notað. Við treystum kennarastéttinni og hvetjum til fjölbreytni í rekstri þar sem það bætir þjónustu við börn og foreldra. Við viljum taka upp samræmd próf sem raunhæft viðmið. Við viljum sjá sterka grunnfærni, meira sjálfstraust og betri lífskjör til framtíðar.

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur stórra hugmynda og framkvæmda. Við ætlum að leiða næsta framfaraskeið á Íslandi með ábyrgð, festu og trú á krafta fólksins í landinu. Nú er tími skýrra ákvarðana sem sjást í daglegu lífi. Nú er tími lægri álaga, hraðari afgreiðslu og sterkari grunnstoða. Skýr stefna – sterkara Ísland.

Guðrún Hafsteinsdóttir
formaður Sjálfstæðisflokksins