15. nóvember 2025

Bæjarmálafundur 17. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 mánudaginn 17. nóvember kl. 17:30.

Farið yfir fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2026-2029 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), álagningu fasteignagjalda, úthlutun lóða á Hlíðarvelli og almennt um stöðuna almennt í bæjarmálum.  

Fundarstjóri: Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Við minnum á að fundur með forystu Sjálfstæðisflokksins fer svo fram í kjölfarið á Múlabergi á Hótel KEA síðar um kvöldið kl. 20:00.

Allir velkomnir - heitt á könnunni.