23. maí 2025

Magnús Björnsson látinn

Magnús Björns­son, fyrrum starfsmaður Landsbankans á Akureyri, lést 5. maí sl. og er jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 23. maí.

Magnús fædd­ist á Ísaf­irði 1. nóv­em­ber 1928. Hann var son­ur hjón­anna Ingi­bjarg­ar Jóns­dótt­ur, hús­móður, og Björns Magnús­son­ar, sím­stöðvar­stjóra og út­gerðar­manns á Ísaf­irði. Systkini Magnúsar voru Jón, Guðrún og Guðný sem öll eru látin.

Magnús var yngst­ur fjög­urra systkina og ólst upp á Ísaf­irði fyrstu ævi­ár­in. Þegar hann var á fjórða ári missti hann föður sinn og í kjöl­farið flutti móðir hans með hann og syst­ur hans Guðnýju til Ak­ur­eyr­ar en tvö eldri systkin­in Jón og Guðrún voru flutt að heim­an. 

Magnús út­skrifaðist frá Sam­vinnu­skól­an­um 1946. Fyrst starfaði hann við bóka­versl­un Ax­els Kristjáns­son­ar en síðan ráðinn til Landsbanka Íslands þar sem hann starfaði þar í 42 ár, allt til vors 1997 þegar Magnús var kominn fast að sjötugu. 

Á yngri árum var Magnús mik­ill íþróttamaður og lagði stund á marg­ar íþrótta­grein­ar. Hann keppti m.a. í frjáls­um íþrótt­um, fim­leik­um og hand­knatt­leik fyr­ir hönd KA. Magnús gegndi for­mennsku í KA 1951-1952, hann var alla tíð mik­ill áhugamaður um það fé­lag og gengi þess og studdi við fram­gang fé­lags­ins. Magnús var virk­ur í starfi Sjálf­stæðis­flokks­ins og sat í ýms­um ráðum og nefnd­um á veg­um flokks­ins. Hann átti lang­an starfs­ald­ur í Frí­múr­ar­a­regl­unni á Ak­ur­eyri og gegndi þar trúnaðar­störf­um. Þá var hann formaður Fé­lags versl­un­ar- og skrif­stofu­fólks á Ak­ur­eyri 1953-1954.

Magnús kvænt­ist 1953 Þór­unni Sig­ur­björns­dótt­ur, f. 12.2. 1932 á Ak­ur­eyri, hún starfaði lengst af við kennslu í Barna­skóla Ak­ur­eyr­ar. Þórunn var líkt og Magnús virk í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri um áratugaskeið. Þórunn er dótt­ir Sig­ur­björns Þor­valds­son­ar bif­reiðastjóra, og Stein­unn­ar Ingi­bjarg­ar Jóns­dótt­ur hús­móður. 

Börn Magnús­ar og Þór­unn­ar eru: Björn, Steinar, Sigríður Margrét og Guðmundur. Barnabörnin eru tíu og langafabörnin eru einnig tíu talsins. Björn, sonur Magnúsar og Þórunnar, var formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í tæpan áratug og sat einnig í nefndum og ráðum fyrir flokkinn rétt eins og foreldrar hans.


Sjálfstæðismenn á Akureyri minnast Magnúsar Björnssonar með hlýhug og þakka fyrir áratugastörf hans í þágu Sjálfstæðisflokksins. Fjölskyldu Magnúsar færum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Magnúsar Björnssonar.


Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings