23. maí 2025

Vel heppnuð grillveisla!

Grillveisla Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fór fram á Vitanum Mathús í gærkvöldi. Það má með sanni segja að það sé hugur í okkur Sjálfstæðismönnum á Akureyri þar sem viðburðurinn var afar vel sóttur og mikil stemming í hópnum. Þá var sérstaklega ánægjulegt að eiga kvöldstund með Sjálfstæðismönnum víðar úr kjördæminu sem gerðu sér ferð til okkar á Akureyri til þess að njóta kvöldsins með okkur.


Stefán Einar Stefánsson fór á kostum sem veislustjóri kvöldsins og stóðu þingmennirnir okkar Jens Garðar og Diljá Mist sig afar vel þegar hann Stefán Einar tók þau á tal. Veglegt happdrætti beið gesta sem skemmtu sér afar vel. 


Viðburður sem þessi er afar mikilvægur til þess að þétta raðir okkar og það er góðs viti að sjá áhuga á flokksstarfinu okkar. Stjórnir Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri hafa sett sér metnaðarfull markmið fyrir starfsárið og má með sanni segja að kvöldið í gær hafi staðfest kraftinn og samstöðuna sem í okkur býr.