Gerum bæinn betri

Kæru Akureyringar!
Á fjögurra ára fresti birtast frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga eins og farfuglar að vori, kynna sig og stefnumál sín í von um að fá atkvæði ykkar og umboð til að stýra sveitarfélaginu næstu fjögur árin. Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins liggur nú fyrir og hefur verið borin í öll hús. Við leggjum mikla áherslu á að Akureyrarbær verði eftirsóknarvert sveitarfélag til búsetu. Til þess að svo verði þarf öll umgjörð í þjónustu að uppfylla þarfir og óskir íbúa, fyrirtækja og stofnana.
Sterkt og fjölbreytt atvinnulíf er ein af forsendum þess að fólk vilji búa í bænum. Það er því afar mikilvægt að styðja vel við fyrirtæki og stofnanir sem hér starfa t.d. með hóflegum álögum og stuðningi við frumkvöðlastarf og nýsköpun. Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein hér sem víðar. Það er hins vegar ljóst að grundvöllur vaxtar í ferðaþjónustunni er að komið verði á reglulegu millilandaflugi til Akureyrar. Það er eitt af stóru verkefnunum sem við verðum öll að sameinast um.
Önnur forsenda þess að fólk vilji búa hér og starfa er fjölbreytt og góð þjónusta. Við viljum tryggja öruggt og menntandi umhverfi fyrir öll börn. Því leggjum við áherslu á að í boði verði leikskólavist fyrir börn frá eins árs aldri í samræmi við áherslu ríkisstjórnarinnar um lengingu fæðingarorlofs í 12 mánuði. Fimm ára börnum á að standa til boða að hefja skólagöngu í grunnskóla og þar á að bjóða upp á frístund fyrir börn að tíu ára aldri með fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Það þarf að nútímavæða skólastarf en til þess þarf markvissan stuðning við kennara og stjórnendur, því við viljum eiga skóla í fremstu röð sem leggja ríka áherslu á góða líðan og árangur.
Við viljum hækka frístundastyrk barna og unglinga í 50.000 kr. á ári og auka þannig möguleika allra til að stunda íþrótta- og tómstundastarf. Við viljum stuðla að almennri heilsueflingu en þó sérstaklega hjá eldri borgurum, því góð heilsa er lykill að hamingjusömu lífi og virkri þátttöku í samfélaginu. Það þarf því að gefa þeim eldri borgurum sem það vilja tækifæri til að vera virkir á atvinnumarkaði eins lengi og þeir óska.
Fallegt, öruggt og snyrtilegt umhverfi er mikilvægt fyrir líðan fólks. Ljúka þarf gróðursetningu í græna trefilinn og leggja áherslu á að bærinn sé vel skipulagður með öruggum leiðum fyrir vegfarendur, fallegum byggingum, gróðri og grænum opnum svæðum sem eru vel hirt.
Við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins bjóðum fram krafta okkar til þjónustu við ykkur kæru íbúar og erum tilbúin til góðra verka svo BÆRINN VERÐI BETRI.
Gunnar Gíslason
, bæjarfulltrúi,
skipar 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri