2. maí 2018

Unga og kraftmikla Akureyri

Ungir Sjálfstæðismenn bjóða til Menningarveislu á Pósthúsbarnum nk. föstudag, 4. maí, kl. 20:00.

Alda Karen, sölu- og markaðsstjóri Ghostlamp í New York, ætlar að halda léttan fyrirlestur fyrir okkur en hún fyllti nýlega Eldborgarsal Hörpu þegar hún var með námskeiðið LIFE- Masterclass.

Ungir frambjóðendur ætla að kynna helstu áherslumál unga fólksins á Akureyri.

Stefán Haukur ætlar að trúbba og trylla lýðinn 🎉 Beer pong og fleira!

Boðið verður upp á drykki á meðan birgðir endast!

ATH! 18 ára aldurstakmark. Allir velkomnir!