5. maí 2018
Bæjarmálafundur 7. maí


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í kosningaskrifstofu flokksins í Kaupvangsstræti 1, 2. hæð, mánudaginn 7. maí kl. 17:30.
Rætt um ársreikning Akureyrarbæjar 2017, stefnuræðu formanns velferðarráðs, viðauka um fjárhagsáætlun 2018, skipulagsmál, fjármálaáætlun ríkisstjórnar og farið yfir stöðuna í kosningabaráttunni þegar 19 dagar eru til kosninga.
Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.