7. maí 2018

Brúum bilið

Fjölskyldubærinn Akureyri hefur ekki staðið undir nafni síðustu misseri ef marka má könnun Gallup á viðhorfi bæjarbúa til þjónustu leikskóla. Hvað veldur? Erfitt er að segja til um hvað það er nákvæmlega þar sem Akureyrarbær hefur ekki keypt frekari greiningu frá Gallup.

Á síðasta kjörtímabili heimsótti ég, undirrituð alla leikskóla bæjarins og þá einnig leikskólana í Hrísey og Grímsey. Upplifun mín var sú að innra starf leikskólanna væri mjög gott og til fyrirmyndar. Tilfinning mín er hins vegar að niðurstöður ofangreindrar könnunar megi rekja til eftirfarandi þátta er snúa að pólitíkinni: 

  • Skortur á dagforeldra- og leikskólaplássum.

  • Lítill sveigjanleiki varðandi sumarfrí vegna leikskólalokana.

  • Leikskólar loka 16:15.



Ef við tökum niðurstöður fyrir Akureyri saman frá 2008 þá hefur einkunnin hrapað frá 4,1 niður í 3,4 og nú stöndum við í þriðja neðsta sæti af þeim 19 sveitarfélögum sem mæld voru. 

Við þessu þarf að bregðast og ekki síst ef við viljum vera samkeppnishæf við önnur sveitarfélög og laða að okkur fjölskyldufólk til þess að setjast hér að. 

Við Sjálfstæðismenn og konur á Akureyri ætlum að setja leikskólamál í forgang. Við viljum að íbúar svari því til að þeir séu ánægðir með þjónustu leikskólanna. Við setjum stefnuna á að öll börn fái leikskólapláss við 12 mánaða aldur. Við gerum ráð fyrir því að ríkisstjórnin vinni að því að lengja fæðingarorlofið á móti til þess að brúa bilið eins og kemur fram í stjórnarsáttmála hennar.

Við stefnum á að stytta sumarlokanir leikskóla og bjóða foreldrum upp á meiri sveigjanleika varðandi sumarfrí barna sinna. Einnig viljum við kanna hug foreldra til lengingar á daglegum opnunartíma leikskólans til 16:30 og ef foreldrar eru á því að það kæmi þeim vel viljum við bregðast við því.

Við viljum að fjölskyldubærinn Akureyri standi undir nafni og að þjónusta leikskólanna verði ávallt sú besta. 

Eva Hrund Einarsdóttir , bæjarfulltrúi
skipar 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri