21. maí 2025

Fyrsta skóflustunga tekin að leikskólanum Hagasteini

Heimir Örn Árnason, formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, tók í gær fyrstu skóflustungu að nýjum 160 barna leikskóla sem hefur hlotið Hagasteinn og mun við Naustagötu í Hagahverfi á Akureyri. 

Byggingin verður í heild ríflega 1.800 m². Framkvæmdinni er skipt upp í tvo áfanga - sá fyrri með fimm leikskóladeildum verður tilbúinn í ágúst 2026. Fullbúinn verður skólinn tekinn í notkun 2028 með átta leikskóladeildum fyrir nemendur á aldrinum eins til sex ára með allt að 47 stöðugildum en fjöldi starfsfólks er áætlaður 52-57.

Stefnt er að því að nýting á lóðinni verði sem best út frá því starfi sem eiga muni sér stað á leikskólasvæðinu. Stefnt er að því að útlit húss og lóðar taki mið af umhverfinu sem byggingin er í og þjóni sem best starfsemi leikskólans. Leikskólasvæðið verði aðlaðandi bæði að utan og innan og aðkoma auðveld. Á lóðinni er fyrir nokkur trjágróður sem lögð er mikil áhersla á að nýta sem allra best fyrir leikskólalóðina. Lóðin er í afar góðum tengslum við fallega náttúru og útivistarsvæði með trjárækt.

Áætlað er að skólastjóri Hagasteins verði ráðinn á vorönn 2026 og komi í beinu framhaldi að frekari mótun á áherslum skólans í aðdraganda opnunar hans síðsumars 2026. Lögð er mikil áhersla á hollustu og hreyfingu leikskólabarna í Hagasteini, umhverfismennt, flokkun og útivist. Öryggi og heilnæmi í hávegum haft. 

Hagasteinn mun starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, menntastefnu Akureyrarbæjar og Réttindaskóla UNICEF.