18. maí 2025

Heimir Örn kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ

Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, var kjörinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ á 77. þingi ÍSÍ sem haldið var á Berjaya Hótel Reykjavík Natura um helgina.

Willum Þór Þórsson, fyrrum ráðherra og alþingismaður, var kjörinn forseti ÍSÍ og tekur við af Lárusi Blöndal sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir tólf ára forsetatíð.

Auk Heimis hlutu kjör í stjórn: Kári Mímisson, Sigurjón Sigurðsson, Trausti Gylfason, Viðar Garðarsson, Þórdís Anna Gylfadóttir og Þórey Edda Elísdóttir.

Fyrir í framkvæmdastjórn eru: Daníel Jakobsson, 
Elsa Nielsen, Hafsteinn Pálsson, Hjördís Guðmundsdóttir, Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Olga Bjarnadóttir.