Vinnustofa Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Akureyringar - mótum stefnuna saman!
Allir sem vilja taka þátt í að gera góðan bæ betri eru velkomnir á vinnustofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri - fimmtudaginn 3. apríl kl. 18:00 í Brekkuskóla. Boðið verður upp á súpu og brauð - allir velkomnir!
Tilgangur:
Að hittast og ræða helstu framfaramál og æskilegar áherslur í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hugmyndavinnan verður höfð til hliðsjónar við vinnu stefnuskrár Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar í vor.
Fyrirkomulag:
Þátttakendum verður skipt niður á borð eftir helstu málaflokkum. Liðsstjóri leiðir umræður í hverjum málaflokki og kallar eftir viðhorfum hvers og eins. Þátttakendur fá að flytja sig milli borða og fá tækifæri til að ræða þá málaflokka sem þeir hafa helst áhuga á.
Málaflokkar:
- Atvinnumál
- Fjölskyldumál
- Framkvæmdir
- Skipulagsmál
- Ferðaþjónusta
- Mannréttindi og samfélag
- Samgöngur
- Skólamál
- Íþróttir
- Tómstundir
- 60+
- Málefni ungs fólks
- Menningarmál
- Umhverfismál
- Málefni fatlaðra