28. mars 2014

Bæjarmálafundur 31. mars

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 31. mars kl. 20:00.

Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, og Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi, flytja framsögu um bæjarmálin. Rætt t.d. um endurskoðun menningarstefnu, atvinnustefnu Akureyrarbæjar, fráveitu Akureyrarbæjar og stefnuumræðu um framkvæmdaráð og fasteignir Akureyrarbæjar.

Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.

Gunnar Gíslason, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fer yfir stöðu mála í kosningabaráttunni.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.




SFS