3. apríl 2014

Góð stemmning á vinnustofu í Brekkuskóla

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor héldu vinnustofu í Brekkuskóla í kvöld við vinnu á stefnuskrá framboðsins.

Mætingin var góð - gagnleg skoðanaskipti og margar flottar hugmyndir sem komu í sarpinn fyrir frambjóðendur að vinna úr.

Við þökkum öllum þeim sem mættu fyrir komuna og góð innlegg í stefnuvinnuna.


Myndir frá vinnustofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri





SFS