4. apríl 2014

Hverfagöngur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri ganga um hverfi Akureyrar í aprílmánuði. Tilgangurinn er að gefa íbúum tækifæri á að hitta frambjóðendur og koma með ábendingar um það sem betur má fara.

Allir eru velkomnir - okkur langar til að hitta þig, heyra hvað þú hefur að segja um hverfið þitt: hver staðan er á göngustígum, umferðaröryggi, leikvöllum, í skipulagsmálum og öðru mikilvægu.

Hér má sjá nánari upplýsingar um dagsetningar í hverfisgöngunum og tímasetningar þeirra.


Mánudaginn 7. apríl Brekka og Innbær
Við hittumst við Brekkuskóla kl. 17:00 og við Skautahöllina kl. 18:00
Göngustjórar: Elías Gunnar Þorbjörnsson og Þórunn Sif Harðardóttir

Þriðjudaginn 8. apríl
Síðuhverfi
Við hittumst við Síðuskóla kl. 17:00
Göngustjóri: Gunnar Gíslason

Miðvikudaginn 9. apríl
Oddeyri
Við hittumst við Oddeyrarskóla kl. 17:00 og við Smábátahöfnina kl. 18:00
Göngustjóri: Sigurjón Jóhannesson

Fimmtudaginn 10. apríl
Lunda og Gerðahverfi
Við hittumst við Lundarskóla kl. 17:00 og við Háskólann kl. 18:00
Göngustjóri: Eva Hrund Einarsdóttir

Mánudagur 14. apríl
Giljahverfi
Við hittumst við Giljaskóla kl. 17:00 og Samkaup Strax kl. 18:00
Göngustjóri: Bergþóra Þórhallsdóttir

Þriðjudagur 15. apríl
Holta- og Hlíðarhverfi
Við hittumst við Glerárskóla kl. 17:00 og Glerártorg kl. 18:00
Göngustjóri: Gunnar Gíslason

Miðvikudagur 16. apríl
Miðbærinn
Við hittumst við Akureyrarkirkju kl. 16:00, við Hof kl. 17:00 og við Ráðhúsið kl. 18:00
Göngustjórar: Gunnar Gíslason og Eva Hrund Einarsdóttir

Miðvikudagur 23. apríl
Naustahverfi
Við hittumst við Naustaskóla kl. 17:00 og við Bónus kl. 18:00
Göngustjórar: Njáll Trausti Friðbertsson og Jón Orri Guðjónsson

Grímsey og Hrísey
auglýst síðar




SFS