4. febrúar 2014

Utankjörfundarkosning - kosning á kjördegi 8. febrúar

Utankjörfundarkosning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri hefur staðið frá mánudegi 27. janúar sl. og mun standa til nk. föstudags, 7. febrúar.

Kosið er sem hér segir:

Akureyri
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kaupangi v/Mýrarveg
Kosning virka daga kl. 15:00 – 18:00
Tengiliður: Stefán Friðrik Stefánsson - s: 8478492

Reykjavík
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
Kosning virka daga kl. 9:00 – 17:00
Tengiliður: Petrea Jónsdóttir - s: 5151700

Grímsey
Félagsheimilið
Kosning miðvikudaginn 5. febrúar kl. 14:00 – 18:00
Tengiliður: Bjarni Magnússon - s: 8933101


Á kjördegi, 8. febrúar, verður kosið sem hér segir:

Akureyri - Oddeyrarskóli
Kosning milli kl. 10:00 og 18:00

Hrísey - Brekka
Kosning milli kl. 12:00 og 15:30

Kynningarblað vegna prófkjörs
Kynning á frambjóðendum á profkjor.is


Athugið: kjósa skal sex frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri né færri



Hverjum er heimil þátttaka í prófkjörinu?

  1. Öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í sveitarfélaginu sem þar eru búsettir og náð hafa 15 ára aldri prófkjörsdaginn.

  2. Þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarrétt í sveitarfélaginu við sveitarstjórnarkosningar, 31. maí 2014, og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í sveitarfélaginu fyrir lok kjörfundar.

 

Kjósendur þurfa að vera viðbúnir því að sýna persónuskilríki.


Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri