Fundur frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri kynna sig á sameiginlegum fundi á Hótel KEA fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20:00.
Í framboði eru: Ármann Sigurðsson, Baldvin Valdemarsson, Bergþóra Þórhallsdóttir, Elías Gunnar Þorbjörnsson, Eva Hrund Einarsdóttir, Gunnar Gíslason, Hjörtur Narfason, Kristinn F. Árnason, Njáll Trausti Friðbertsson, Sigurjón Jóhannesson og Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir.
Frambjóðendur flytja þriggja mínútna framsögu og svara fyrirspurnum úr sal að því loknu. Í fundarlok fá frambjóðendur að flytja örstutt lokaorð úr pallborði.
Fundarstjóri: Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Allir velkomnir - heitt á könnunni.