2. febrúar 2014
Bæjarmálafundur 3. febrúar


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 3. febrúar kl. 20:00.
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, flytur framsögu um bæjarmálin. Rætt t.d. um miðbæjarskipulagið, 3. áfanga Naustahverfis - Haga, og stefnuumræðu um Akureyrarstofu.
Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.
Fundarstjóri: Jón Orri Guðjónsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.