22. febrúar 2016

Umræðufundur um stjórnarskrármál 27. febrúar

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Kaupangi laugardaginn 27. febrúar kl. 11:00.

Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum.

Rætt um stjórnarskrármál, en stjórnarskrárnefnd sem Valgerður situr í hefur nú skilað tillögum sínum.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.

Allir velkomnir - boðið upp á létta morgunhressingu.