21. febrúar 2016

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hríseyjar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hríseyjar var haldinn í gær. Kristinn Frímann Árnason var endurkjörinn formaður. Kristinn Frímann var varaformaður félagsins 2005-2010 en hefur síðan verið formaður. Kristinn hefur verið formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi frá árinu 2014.

Auk Kristins voru kjörnir í aðalstjórn: Narfi Björgvinsson, varaformaður, Hrafnhildur Sigurðardóttir, gjaldkeri, Heimir Sigurgeirsson og Smári Thorarensen. Í varastjórn voru kjörin: Bára Jónína Steinsdóttir og Pétur Ásgeir Steinþórsson.

Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Hríseyjar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.