Kjördæmisþing í Sveinbjarnargerði 9. apríl


Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á sveitahótelinu í Sveinbjarnargerði laugardaginn 9. apríl nk. Fyrirhugað er að halda tveggja daga kjördæmisþing.
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 13:00 með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins.
Ráðgert er að fundurinn standi til kl. 17:00. Í boði verður fyrir hádegisverður fyrir þingsetningu. Samhliða fundinum verður haldinn aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi.
Að loknum þingstörfum á laugardeginum verður kvöldverðarskemmtun þar sem hópurinn skemmtir sér saman.
Í boði er gisting í Sveinbjarnargerði: 12.500 kr. nóttin í eins og tveggja manna herbergi. Vinsamlegast bókið herbergi í tíma.
Nánari dagskrá aðalfundarins verður kynnt síðar.