22. febrúar 2016

Aðalfundur fulltrúaráðs - Harpa kjörin formaður

Harpa Halldórsdóttir var kjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í kvöld, í stað Andra Teitssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Harpa hefur setið í varastjórn fulltrúaráðs frá árinu 2014 og situr nú í stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar.

Auk hennar voru Sigurjón Jóhannesson og Þórunn Sif Harðardóttir kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Þórhallur Jónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin; María Marinósdóttir, Jón Orri Guðjónsson og Henning Jóhannesson.

Að loknum aðalfundarstörfum fór Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, yfir stöðu mála varðandi aðgerðahóp um fjárhagsstöðu Akureyrarbæjar, sem allir oddvitar framboða í bæjarstjórn eiga sæti í ásamt bæjarstjóra, og fór almennt yfir stöðu bæjarins nú.

Einnig fór Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs, yfir stöðuna á vettvangi flokksstarfsins í kjördæminu, en kjördæmisþing verður haldið í Sveinbjarnargerði 9. apríl nk. til undirbúnings fyrir alþingiskosningar á næsta ári.