15. nóvember 2021

Tillaga um prófkjör samþykkt á fundi fulltrúaráðs

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri samþykkti á fundi sínum í Kaupangi í kvöld tillögu um að prófkjör fari fram við val á fjórum efstu sætum framboðslista við sveitarstjórnarkosningar vorið 2022. Áður hafði tillaga meirihluta stjórnar fulltrúaráðsins um röðun verið felld á fundinum, en hún þurfti að fá stuðning 2/3 fundarmanna. Kjörnefnd mun taka ákvörðun um framboðsfrest og dagsetningu prófkjörs.


Á fundinum tilkynnti Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi, að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs í kosningunum í vor. Hún hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2014.

Á fundinum var kjörnefnd til að sjá um ferlið fram að afgreiðslu framboðslista kjörin. Í henni eiga sæti níu fulltrúar - fjórir frá fulltrúaráði (kjörnir á fundinum) og einn frá hverju sjálfstæðisfélagi sem stjórnir félaganna tilnefna. 

Fulltrúaráð

Aðalmenn:
Bjarni Sigurðsson, Harpa Halldórsdóttir, Helga Ingólfsdóttir og Jóhann Gunnarsson

Varamenn:
Finnur Sigurgeirsson, Karl Guðmundsson, Kolbrún Sigurgeirsdóttir og Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson

Málfundafélagið Sleipnir
Aðalmaður: Stefán Friðrik Stefánsson – Varamaður: Ragnar Ásmundsson

Sjálfstæðisfélag Akureyrar
Aðalmaður: Valdemar Karl Kristinsson – Varamaður: Hildur Brynjarsdóttir

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri
Aðalmaður: Embla Blöndal – Varamaður: Kristján Blær Sigurðsson

Vörn, félag sjálfstæðiskvenna á Akureyri
Aðalmaður: Svava Þ. Hjaltalín - Varamaður: Gerður Ringsted 

Sjálfstæðisfélag Hríseyjar
Tilnefning stjórnar lá ekki fyrir áður en fundur var haldinn.