Eva Hrund Einarsdóttir gefur ekki kost á sér til endurkjörs


Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi, tilkynnti á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í gærkvöldi að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs í kosningunum í vor. Hún hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2014.
Eva Hrund er fædd á Akureyri 26. febrúar 1977. Eva Hrund varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1998 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur úr Háskólanum á Akureyri 2003.
Eftir nám hóf hún störf sem ráðgjafi hjá Capacent. Frá árinu 2008 hefur Eva Hrund verið starfsmannastjóri hjá Lostæti. Þar sér hún um starfsmannamál, áætlanagerð, gæða- og öryggismál ásamt hluta af fjármálastjórnun. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og er eitt stærsta sinnar tegundar á landsbyggðinni, með í kringum 70 starfsmenn á Akureyri og Reyðarfirði.
Eva Hrund er annar af stofnendum fyrirtækisins og félagsskaparins EXEDRA sem er tengslanet og vettvangur umræðna fyrir fjölbreyttan hóp kvenna úr fremstu röð í öllu atvinnulífinu. Eva starfaði nokkur ár sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins en er í dag stjórnarformaður.
Eva sat í stjórn Landsbankans við uppbyggingu eftir hrun. Hún sat í stjórn fasteigna og í framkvæmdaráði hjá Akureyrarbæ árin 2008-2009 og var formaður Góðvina Háskólans á Akureyri um tíma.
Eins og fyrr segir hefur Eva Hrund verið bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri frá 2014. Hún hefur verið formaður frístundaráðs og formaður MAK frá 2020 og setið í stjórn Norðurorku frá 2019. Eva Hrund sat áður í stjórn Akureyrarstofu 2014-2020 og í skólanefnd 2014-2016. Eva Hrund hefur verið 2. varaforseti bæjarstjórnar frá 2018. Hún sat í bæjarráði 2018-2019.
Eva Hrund er gift Árna Kár Torfasyni og eiga þau saman tvær dætur, Hildi Sigríði og Katrínu Lilju.