12. nóvember 2021

Bæjarmálafundur 15. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 15. nóvember kl. 17:30. Rætt t.d. um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn) og skipulagsmál.

Allir velkomnir - tekið er þó mið af nýjum sóttvarnarreglum sem gera ráð fyrir 50 manns hámarki, eins metra fjarlægð óskyldra aðila og grímuskyldu.


Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi.