Stefnumót við frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Opnir fundir með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verða haldnir í Kaupangi fimmtudagana 17. og 24. mars kl. 20:00.
Upplýsingar um frambjóðendur
Prófkjörið fer fram í Brekkuskóla laugardaginn 26. mars nk. kl. 10:00 til 18:00
- kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn.
Utankjörfundarkosning í prófkjörinu fer fram í Kaupangi fimmtudaginn 17. mars kl. 15:30 til 18:30, laugardaginn 19. mars kl. 10:00 til 14:00 og fimmtudaginn 24. mars kl. 15:30 til 18:30 og í Valhöll virka daga 21. til 25. mars kl. 10:00 til 16:00.