Stefán Friðrik leggur fram bókun í skipulagsnefnd


Á fundi skipulagsnefndar 16. apríl sl. var afgreidd aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagstillaga um miðbæ Akureyrar, byggt á tillögu að miðbæjarskipulagi sem Logi Már Einarsson, arkitekt, hefur unnið að.
Stefán Friðrik Stefánsson, áheyrnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulagsnefnd, lagði fram bókun við afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar. Bókunin er svohljóðandi:
Stefán Friðrik Stefánsson, áheyrnarfulltrúi D-lista, óskar bókað:
Ég leggst eindregið gegn hugmyndum um þrengingu Glerárgötu og lýsi yfir áhyggjum af tilhögun bílastæðamála í tillögunni, og tel mjög mikilvægt að huga að bílastæðahúsi í miðbænum.
Einnig leggst ég gegn staðsetningu umferðarmiðstöðvar í tillögunni.
Á sama fundi var afgreidd aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagsbreyting vegna virkjunar á Glerárdal, sem Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, hefur lengi barist fyrir og talað fyrir á vettvangi bæjarstjórnar Akureyrar.
Tillögur um miðbæ og virkjun á Glerárdal verða lagðar fyrir bæjarstjórn á næsta fundi, 6. maí nk.