19. apríl 2014
Bæjarstjórn samþykkir bókun um málefni Reykjavíkurflugvallar


Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða á fundi sínum, þriðjudaginn 15. apríl, bókun sem Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, lagði fram um málefni Reykjavíkurflugvallar. Hún hljóðar svo:
Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim áhrifum sem langvarandi óvissa um framtíð Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri veldur.
Það verður ekki lengur við það unað, að áformað sé að skerða stórkostlega lífsnauðsynlegar flugsamgöngur landsmanna við höfuðborg landsins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Bæjarstjórn Akureyrar skorar á Reykjavíkurborg og ríkisvaldið að þau nái samkomulagi um að hrófla ekki við Reykjavíkurflugvellinum í Vatnsmýri þar til viðunandi lausn finnst fyrir alla landsmenn, með líkum hætti og gert var með Bromma flugvöll í Stokkhólmi þar sem öryggishagsmunir Svíþjóðar voru hafðir að leiðarljósi.
Mikilvægt er að Reykjavíkurborg virði það samkomulag sem er í gildi milli hennar, ríkisins og Icelandair group. Brýnt er að öryggi innanlandsflugs í Vatnsmýri verði tryggt.
Með þeim hætti einum getur Reykjavík verið höfuðborg landsmanna allra.