22. apríl 2014

Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta

Sjálfstæðismenn á Akureyri munu fagna sumarkomu með því að koma saman í vöfflukaffi í Kaupangi á sumardaginn fyrsta, 24, apríl, frá kl. 15:00.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri munu baka vöfflur og ræða kosningamálin við kjósendur.

Hvetjum alla til að mæta og fagna sumarkomu með okkur og um leið upphafi formlegrar kosningabaráttu fyrir kosningar 31. maí nk.