24. apríl 2014

Hverfisganga í Hrísey

Hverfisgöngum frambjóðenda hér á Akureyri er nú lokið. Göngurnar hafa verið vel sóttar, hverfisnefndir hafa tekið þátt í verkefninu og frambjóðendur margs vísari um stöðu mála í hverfunum.

Frambjóðendur verða á ferð í Hrísey laugardaginn 26. apríl og munu kynna sér stöðu mála þar. Hverfisganga verður kl. 14:00, komið verður saman við Hríseyjarskóla - farið í góðan göngutúr með hverfisnefnd Hríseyjar.

Að lokinni göngu verður fundað með heimamönnum og við munum svo snæða kvöldverð á veitingastaðnum Brekku fyrir brottför kl. 21:00.


Stefnt er að hverfisgöngu í Grímsey þriðjudaginn 6. maí nk.





SFS