21. janúar 2018

Röðun í Brekkuskóla 3. febrúar

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri kemur saman til fundar í Brekkuskóla laugardaginn 3. febrúar nk. Þar verður kosið um sex efstu sætin á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 26. maí nk. í svonefndri röðun, þar sem aðal- og varafulltrúar í fulltrúaráði hafa atkvæðisrétt.

Dagskrá:

09:30 Skráning á fundinn (fundargjald: 1.500 kr. - veitingar í hádegishléi innifaldar í gjaldinu) ath. enginn posi
10:00 Fundur hefst – formaður fulltrúaráðs flytur stutta tölu
10:05 Formaður kjörnefndar fer yfir ferlið í kosningu um efstu sex sætin
10:10 Kosning hefst – kynning frambjóðenda og kosið í hvert sæti fyrir sig
12:15 Hádegishlé
12:45 Kosning og kynning frambjóðenda heldur áfram

Að lokinni kosningu í sex efstu sætin mun oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum 2018 flytja ræðu og fara yfir kosningabaráttuna framundan.

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri mun aftur funda fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20:00. Þar mun tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista flokksins í sveitarstjórnarkosningum 2018 í heild verða lögð fram. Þann fund sitja einungis aðalmenn í fulltrúaráðinu.