20. janúar 2018

Bæjarmálafundur 22. janúar

Boðað er til bæjarmálafundar í  Kaupangimánudaginn  22. janúar kl. 17.30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 23. janúar verða rædd.

Á dagskrá bæjarmálafundarins verða eftirtalin mál til umræðu:

  • Uppgjör Akureyrarbæjar við Brú lífeyrissjóð og lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna þess.
  • Siðareglur bæjarfulltrúa
  • Skipulagsmál
  • Stefnuskrá xd – staða mála
  • Önnur mál

Fundarstjóri verður  Gunnar Gíslason , bæjarfulltrúi.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin í aðdraganda röðunar 3. febrúar nk.