Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar


Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í kvöld. Anna Rósa Magnúsdóttir var kjörin formaður í stað Þórhalls Jónssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Anna Rósa var varaformaður félagsins á síðasta starfsári.
Lára Halldóra Eiríksdóttir, Þórhallur Harðarson, Þórhallur Jónsson og Þórunn Sif Harðardóttir voru einnig kjörin í aðalstjórn. Í varastjórn sitja Ásgeir Örn Blöndal, Kristinn Svanbergsson, Elías Gunnar Þorbjörnsson, Finnur Sigurgeirsson og Þórarinn Kristjánsson.
Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar að félagsgjald verði óbreytt, 2.500 kr. á starfsárinu og var stjórn falið að innheimta gjaldið.
Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.