7. mars 2022

Opinn fundur með Njáli Trausta 12. mars

Sjálfstæðisfélag Akureyrar ásamt Njáli Trausta Friðbertssyni, alþingismanni og oddvita sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi, standa fyrir opnum fundi í Kaupangi laugardaginn 12. mars n.k. kl. 11:00.

Þar ræðir Njáll Trausti stöðuna sem upp er komin vegna innrásar stjórnavalda í Rússlandi inn í nágrannaríkið Úkraínu.

Hvaða áhrif gætu aðgerðir stjórnavalda í Rússlandi haft á stjórnmál í Evrópu og á alþjóðavísu? Munu atburðirnir, sem nú eru að eiga sér stað í álfunni austanverðri, leiða af sér breytta heimsmynd?

 

Njáll Trausti er varaformaður utanríkismálanefndar og formaður íslandsdeildar NATO þingsins

 

Fundurinn er öllum opinn.