6. mars 2022

Sex gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Sex einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor.

Frambjóðendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:

Heimir Örn Árnason , deildarstjóri 
Hildur Brynjarsdóttir , þjónustufulltrúi
Ketill Sigurður Jóelsson , verkefnastjóri
Lára Halldóra Eiríksdóttir , grunnskólakennari og varabæjarfulltrúi
Þórhallur Harðarson , framkvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi
Þórhallur Jónsson , bæjarfulltrúi 


Prófkjörið fer fram í Brekkuskóla laugardaginn 26. mars nk. kl. 10:00 til 18:00 og kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar.

Utankjörfundarkosning í prófkjörinu fer fram í Kaupangi fimmtudaginn 17. mars kl. 15:30 til 18:30, laugardaginn 19. mars kl. 10:00 til 14:00 og fimmtudaginn 24. mars kl. 15:30 til 18:30 og í Valhöll virka daga 21. til 25. mars kl. 10:00 til 16:00.


Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri