4. desember 2014
Ólöf Nordal verður innanríkisráðherra


Ólöf Nordal, fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tók sæti í dag sem innanríkisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í stað Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Ólöf var varaformaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2010-2013 og sat á Alþingi 2007-2013, þar af fyrstu tvö árin sem alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, en svo í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Ólöfu fylgja góðar óskir frá flokksfélögum á Akureyri í hinum miklu verkefnum sem fylgja innanríkisráðuneytinu um leið og við óskum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur velfarnaðar.